Bananamúffur

graenmetis
kjotlaust

Vel þroskaðir bananar fá nýtt líf í þessum ljúffengu, trefjaríku bananamúffum.

Kornvörur sem innihalda glúten,
Egg og afurðir úr þeim,
Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Bananamúffur

Aðferð

https://fuldkorn.dk/
  1. Forhitið ofninn í 180°C með blæstri. 

  2. Afhýðið bananana, setjið í stóra skál og stappið með gaffli. Takið örlítið af banananum frá, skerið í sneiðar og setjið ofan á múffurnar áður en þær fara í ofninn.

  3. Brjótið eggið og bætið því saman við bananastöppuna ásamt mjólk og olíu. Hrærið öllu vel saman með gaffli.

  4. Setjið hveiti, haframjöl, lyftiduft, salt og vanillu í skál og blandið saman. Hellið þurrefnunum síðan hægt og rólega saman við deigið og hrærið rétt nógu lengi til að öll hráefnin blandist.

  5. Finnið til muffinsform og setjið á ofnplötu. Skiptið deiginu jafnt í hvert form. Toppið með bananaskífum. 

  6. Bakið múffurnar í 15–20 mínútur. Eftir 15 mínútur má stinga gaffli í miðjuna og ef hann kemur hreinn upp eru múffurnar tilbúnar.

Til að bragðbæta múffurnar enn frekar má bæta söxuðu dökku súkkulaði eða hökkuðum hnetum út í deigið. Einnig má bræða smá dökkt súkkulaði og skreyta múffurnar með því eftir bakstur.

Næringargildi
Fuldkornspartnerskabet

Innihald

12 skammtar
4 
stk
Bananar
2 
stk
Egg
0.5 
dl
Mjólk (t.d. fjörmjólk eða haframjólk)
0.5 
dl
Olía (t.d. ólífu-, repju- eða sólblómaolía)
90 
g
Hveiti
40 
g
Haframjöl
1 
tsk
Lyftiduft
0.25 
tsk
Salt
1 
tsk
Vanilla (að eigin vali)

Grunnuppskriftin miðast við 12 muffins eða 12 skammta.

Bæta á innkaupalista
Bæta á dagatal
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti