Asískt steikarsalat

Létt og bragðgott asísk nautasalat með góðu jafnvægi af súru, sætu og umami.

Kornvörur sem innihalda glúten,
Hnetur og afurðir úr þeim,
Sesamfræ og afurðir úr þeim,
Asískt steikarsalat

Aðferð

    Steiking á kjöti

  1. Þerrið kjötið létt með eldhúspappír, saltið og piprið báðum megin. 

  2. Hitið stál- eða steypujárnspönnu upp í miðlungsháan hita. Bætið olíu á pönnuna og leyfið henni að hitna í 10–15 sekúndur til viðbótar.

  3. Steikið kjötið óhreyft í 2–3 mínútur á annarri hliðinni til að fá góða skorpu. Snúið því við með töng og steikið hina hliðina í 2–3 mínútur ef þið viljið hafa kjötið bleikt í miðjunni. Ef kjötstykkið er þykkt, steikið það í 3–4 mínútur á hvorri hlið.

  4. Takið kjötið af pönnunni og leggið á trébretti eða disk. Látið hvíla í 5 mínútur áður en þið skerið það í sneiðar, þannig helst safinn betur í kjötinu.

  5. Grænmetið

  6. Skolið og þerrið salat. Skerið það í strimla eða meðalstóra bita. Skolið tómata og skerið þá í hæfilega stóra bita. Takið utan af rauðlauk og skerið hann fínt. Skolið og flysjið gulrætur. Rífið þær í strimla með rifjárni. Skolið vorlauk og saxið hann smátt.

  7. Hnetur

  8. Þurrristið kasjúhnetur létt á meðalheitri pönnu í 3–5 mínútur. Hrærið reglulega upp í þeim svo þær brenni ekki.

  9. Dressing

  10. Takið hýðið af engifer og hvítlauk. Rífið engifer með rifjárni og saxið hvítlauk fínt. Kreistið safann úr helmingi límónu í skál og setjið rifið engifer, saxaðan hvítlauk, tamarisósu, hlynsíróp, sesamolíu og chillíflögur saman við. Hrærið vel saman með skeið.

  11. Samsetning

  12. Skerið restina af límónunni í báta og kjötið í þunnar sneiðar. Setjið salat, kirsuberjatómata, rauðlauk og gulrætur í djúpan disk ásamt kasjúhnetum og steikarsneiðum. Hellið dressingunni jafnt yfir salatið. Toppið með vorlauk, límónubátum og chilíflögum.

Takið kjötið úr kæli um 20 mínútum áður en þið ætlið að steikja það. Þá verður eldunin jafnari.

Notið það grænmeti sem til er á heimilinu í salatið eða skiptið út eftir þörfum. Til dæmis má nota agúrku, papriku, rauðkál, hvítkál eða edamamebaunir.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Gott og einfalt
Gott og einfalt

Innihald

2 skammtar
250 
g
Nautakjöt (t.d. mínútusteik eða flanksteik)
0.25 
tsk
Salt
0.25 
tsk
Pipar
tsk
Olía (t.d. ólífu- eða sesamolía)
250 
g
Salat (t.d. iceberg eða hjartasalat)
10 
stk
Tómatar (t.d. kirsuberjatómatar)
0.5 
stk
Rauðlaukur
stk
Gulrætur
stk
Vorlaukur
30 
g
Kasjúhnetur (eða sesamfræ)
0.5 
tsk
Engifer (ferskt)
rif
Hvítlaukur
stk
Límóna
msk
Tamarisósa (eða sojasósa)
tsk
Hlynsíróp
tsk
Sesamolía (valkvætt)
0.25 
tsk
Chillíflögur (valkvætt)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti