Afrískur kjúklingaréttur

Gómsætur og bragðmikill kjúklingaréttur sem fellur í kramið hjá allri fjölskyldunni – einfaldur í eldun og fullkominn fyrir góða samverustund við matarborðið! 

Ef notaður er frosinn kjúklingur er gott að þíða hann í umbúðum yfir nótt inni í ísskáp eða í umbúðum í köldu vatni ef tími er lítill.

Jarðhnetur og afurðir úr þeim,
Krabbadýr og afurðir úr þeim,
Sojabaunir og afurðir úr þeim,
Afrískur kjúklingaréttur

Aðferð

  1. Forhitið ofninn í 200°C.

  2. Skerið kjúkling í litla bita. Hitið helminginn af olíunni á pönnu og steikið kjúklinginn við miðlungsháan hita. Saltið örlítið þegar hann hefur brúnast vel. Setjið í skál og leggið til hliðar.

  3. Skolið kartöflur og papriku. Takið utan af lauk og hvítlauk. Skerið kartöflur og lauk í þunnar sneiðar, saxið hvítlauk og skerið papriku í litla bita.

  4. Setjið restina af olíunni á pönnuna steikið laukinn fyrst í 5 mínútur. Bætið síðan við hvítlauk og karríi og steikið í eina mínútu til viðbótar.

  5. Bætið næst við kjúklingakrafti, vatni, kókosmjólk, ostrusósu, hnetusmjöri og smá salti. Hrærið vel.

  6. Að lokum er kjúklingi, kartöflum, papriku og lárviðarlaufum bætt við og öllu hrært saman. 

  7. Setjið réttinn inn í ofn í eldföstu móti með álpappír yfir í um 30-40 mínútur eða þar til kartöflurnar eru vel eldaðar.

  8. Takið síðast álpappírinn af og eldið í um 10 mínútur til viðbótar.

Auðvelt er að leika sér með þennan rétt og bæta við grænmeti eins og gulrótum, brokkolíi eða blómkáli – eða því sem til er í kæli. Baunir, ferskar eða úr dós, gefa réttinum ferskleika og bæta við trefjum og próteini.

Upplagt að bera réttinn fram með brúnum hrísgrjónum og fersku salati, eins og spínati eða klettasalati.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Gott og einfalt
Gott og einfalt

Innihald

2 skammtar
300 
g
Kjúklingur (bringur eða læri - ferskur eða frosinn)
msk
Olía (t.d. ólífuolía)
0.5 
tsk
Salt
140 
g
Kartöflur
0.5 
stk
Paprika (má vera hvaða litur sem er)
0.5 
stk
Laukur
rif
Hvítlaukur
0.5 
tsk
Karrí (að eigin vali)
0.75 
stk
Kjúklingakraftur (eða soð)
dl
Vatn (eða eftir þörfum)
80 
ml
Kókosmjólk (t.d. létt kókosmjólk)
0.75 
msk
Ostrusósa (eða t.d. sojasósa eða teriyaki sósa)
0.75 
msk
Hnetusmjör (eða t.d. möndlusmjör)
stk
Lárviðarlauf (valkvætt)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti