
Skólanesti
Hugmyndir að hollu, næringarríku og góðu skólanesti fyrir mikilvægasta fólkið.

Það er bæði einfalt og sniðugt að útbúa eigin kryddblöndur til að eiga heima. Þannig getið þið stýrt bragðinu sjálf og sparað peninga um leið. Hér eru þrjár vinsælar kryddblöndur sem gott er að kunna að gera og nota í daglegri matseld.
Blöndurnar geymast vel í lokaðri glerkrukku í 2 til 3 mánuði eða lengur.
Þessi kryddblanda passar einstaklega vel með fiski, kjúklingi, ofnbökuðum kartöflum og grænmeti, auk þess sem hún hentar vel í pastarétti og yfir pizzur.
Innihaldsefni
Aðferð
Maukið rósmarínið í morteli eða saxið það létt með hníf. Blandið öllum kryddjurtunum saman í skál og færið blönduna yfir í hreina glerkrukku til geymslu.
Tacokryddblanda er frábær m.a. með hakki, linsum, tofu og ofnbökuðu grænmeti. Einnig má nota hana til að bragðbæta sósur og ídýfur.
Innihaldsefni
Aðferð
Blandið öllum innihaldsefnunum saman í skál og færið kryddblönduna yfir í glerkrukku til geymslu.
Garam masala er ilmandi indversk kryddblanda oft úr kryddum eins og kóríander, broddkúmeni, kanil og kardimommum. Hún er mikið notuð í fjölmarga indverska rétti og gefur matnum ríkulegan ilm og dýpt.
Innihaldsefni
Aðferð
Ef þið notið heil krydd, til dæmis kardimommufræ eða piparkorn, setjið þau í mortel og merjið þar til þau verða grófmulin. Ferskt múskat má rífa með rifjárni. Ef kryddin eru þegar möluð má sleppa þessu skrefi. Blandið öllum kryddunum saman í skál og færið blönduna yfir í krukku til geymslu.