„Best fyrir“ & „síðasti notkunardagur“
Margir velta fyrir sér hvort matvæli séu örugg eftir að dagsetning á umbúðum rennur út. Að skilja muninn á „best fyrir“ og „síðasti notkunardagur“ getur sparað peninga, minnkað matarsóun og aukið öryggi.
Aukefnum er bætt í matvæli í ákveðnum tilgangi. Þau geta til dæmis haft áhrif á lit, bragð, áferð, öryggi eða geymsluþol matarins.
Sum aukefni eru unnin úr náttúrulegum hráefnum. Önnur eru framleidd með efnafræðilegum aðferðum til notkunar í matvælum. Óháð uppruna þeirra velta margir fyrir sér hvort aukefni séu örugg til neyslu.
Öll leyfileg aukefni hafa verið metin með tilliti til öryggis. Reglur kveða á um í hvaða matvælum má nota þau og með hvaða skilyrðum.
Áður en aukefni er leyft fer Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) yfir rannsóknir á efninu og metur hvort það sé öruggt. Síðan eru settar reglur um í hvaða matvæli má nota það og í hvaða magni. Þessar reglur gilda einnig á Íslandi.
Í innihaldslýsingu þarf fyrst að koma fram hvert hlutverk aukefnisins er, til dæmis litarefni, rotvarnarefni eða þykkingarefni. Þar á eftir kemur heiti efnisins eða E-númer þess.
Merkingin gæti til dæmis verið:
Bókstafurinn E stendur fyrir Evrópu og númerið er sérstakt auðkenni efnisins. Mörg kunnugleg efni hafa E-númer. Askorbínsýra (E300) er til dæmis C-vítamín, sem finnst meðal annars í appelsínum, papriku og berjum. Mjólkursýra (E270) myndast náttúrulega við gerjun, til dæmis við framleiðslu á skyri og jógúrti. Orðið „sýra“ eða ókunnugt heiti efnis er því ekki merki um að efnið sé hættulegt.
Tilgangur með notkun aukefna er mismunandi eftir því um hvaða matvæli er að ræða og hvaða eiginleikum þeirra er ætlunin að viðhalda eða breyta.
Þau eru meðal annars notuð sem:
Mjólkursýra (E270) er dæmi um aukefni sem notað er til að gera matvæli súrari. Þannig getur hún hægt á vexti sumra baktería og lengt geymsluþolið.
Karótín (E160a) er annað dæmi um efni sem finnst náttúrulega í matvælum og er einnig notað sem aukefni. Það gefur gulrótum og öðru appelsínugulu grænmeti lit og má nota sem litarefni í matvælum.
Önnur aukefni eru framleidd með efnafræðilegum aðferðum, til dæmis sætuefnið súkralósi (E955). Öryggi aukefnis ræðst ekki af uppruna þess, heldur af eiginleikum þess og því magni sem er notað.
Fjöldi aukefna og merking þeirra með heiti eða E-númeri segja ekki til um næringargildi matvæla. Gott er að skoða vörur í heild og meðal annars magn trefja, salts, sykurtegunda og mettaðrar fitu.
Öryggi aukefna er endurmetið þegar ný þekking kemur fram. Ef ástæða er til má breyta reglum um notkun þeirra, lækka leyfilegt magn eða afturkalla leyfi til notkunar