Bananabrauð

graenmetis
kjotlaust

Ekki bara ljúffengt heldur líka sérlega trefjaríkt og hollt sætabrauð.

Kornvörur sem innihalda glúten,
Egg og afurðir úr þeim,
Jarðhnetur og afurðir úr þeim,
Hnetur og afurðir úr þeim,
Bananabrauð í sneiðum

Aðferð

  1. Forhitið ofninn í 180°C. 

  2. Stappið bananana í skál með gaffli og blandið All-Bran út í. Látið standa í um 3 mínútur eða þar til All-Bran kornið hefur mýkst.

  3. Brjótið eggin í aðra skál. Bætið olíu og sykri við og þeytið saman.

  4. Blandið bananahrærunni og eggjablöndunni saman.

  5. Bætið hveiti, lyftidufti, salti og hnetum saman við deigið og blandið vel. Ef hneturnar eru stórar, má saxa þær niður áður.

  6. Smyrjið aflangt brauðform með olíu og setjið deigið varlega í formið.

  7. Bakið á neðstu rim í um 1 klukkustund. Kælið brauðið vel áður en það er sneitt niður.

Veljið það hveiti sem ykkur hentar. Til dæmis má blanda saman venjulegu hveiti og grófara mjöli eins og heilhveiti eða möluðu haframjöli til að auka trefjar og fá grófari áferð.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Af bestu lyst
Af bestu lyst

Innihald

30 skammtar
stk
Bananar (þroskaðir)
70 
g
All-Bran (eða t.d. haframjöl)
stk
Egg
dl
Olía (t.d. ólífuolía)
dl
Sykur (t.d hrásykur)
dl
Hveiti
1.5 
tsk
Lyftiduft
0.5 
tsk
Salt
dl
Hnetur (að eigin vali)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti