Shakshuka (arabískur morgunmatur)

kjotlaust
graenmetis

Shakshuka – krydduð arabísk eggjapanna þar sem eggin eldast í bragðmikilli tómatsósu með grænmeti. Létt og ljúffeng máltíð, hvort sem er í morgun- eða hádegismat.

Egg og afurðir úr þeim,
Shakshuka (arabískur morgunmatur)

Aðferð

https://salteldhus.is/
  1. Skolið papriku og takið utan af lauknum. Skerið paprikuna og laukinn í litla bita eða þunnar sneiðar.

  2. Hitið olíu á pönnu og steikið paprikuna og laukinn á meðalhita þar til grænmetið verður mjúkt.

  3. Takið utan af hvítlauk og pressið eða saxið smátt og bætið út á pönnuna. Steikið í um 1 mínútu til viðbótar.

  4. Bætið broddkúmeni, chilidufti, salti, pipar og hökkuðum tómötum út á pönnuna. Látið sjóða við meðalhita í um 10 mínútur, helst með loki, þar til sósan þykknar og bragðið þróast.

  5. Gerið litlar dældir í sósuna á pönnunni, eina fyrir hvert egg. Brjótið eggin og setjið þau varlega í dældirnar, eitt í einu.

  6. Setjið lokið aftur yfir og látið eggin eldast við meðalhita í um 4 til 5 mínútur. 

Gott er að bera salat og heilkornabrauð fram með réttinum.

Næringargildi
Sigríður Björk Bragadóttir

Innihald

2 skammtar
0.5 
stk
Paprika
0.5 
stk
Laukur
msk
Olía (t.d. ólífu- eða repjuolía)
rif
Hvítlaukur
0.5 
tsk
Broddkúmen (duft)
0.25 
tsk
Chillíduft
0.25 
tsk
Salt
0.25 
tsk
Pipar
200 
g
Tómatar (hakkaðir í dós eða passata)
stk
Egg
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti