Kartöflueggjakaka með grænmeti

graenmetis
kjotlaust

Fljótleg og næringarrík eggjakaka sem hentar allan daginn – heit eða köld.

Egg og afurðir úr þeim,
Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Kartöflueggjakaka með grænmeti

Aðferð

  1. Þvoið kartöflur vel og skerið í þunnar sneiðar. Takið utan af lauk og saxið smátt. Skolið kúrbít og skerið í litla teninga eða rífið niður með rifjárni.

  2. Hitið olíu á pönnu og steikið kartöflur, lauk og kúrbít við meðalháan hita í 7–8 mínútur.

  3. Skolið chillípipar, fjarlægið fræ og saxið smátt. Bætið á pönnuna og steikið áfram í 5 mínútur.

  4. Brjótið eggin í skál og bætið kotasælu við. Hrærið létt saman með gaffli eða handþeytara. Kryddið með salti og pipar. Hellið blöndunni yfir grænmetið á pönnunni, lækkið hitann og látið stífna við mjög vægan hita í 10–15 mínútur með loki.

  5. Rífið niður parmesan og stráið yfir í lokin. Setjið undir grill í ofni í örfáar mínútur ef þið viljið ostinn bakaðan og gylltan.

Berið réttinn fram með tómatabrauði. Merjið hvítlauksrif í smá ólífuolíu og penslið heilkorna brauðsneiðar með olíunni. Skerið tómata í sneiðar og leggið ofan á. Grillið í heitum ofni þar til brauðið er stökkt.

Til að auka næringargildi má bæta við rifnum gulrótum, söxuðum sveppum eða spínati. Smá hvítlauksduft eða fersk steinselja gefa einnig dýpra bragð.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Af bestu lyst
Af bestu lyst

Innihald

2 skammtar
100 
g
Kartöflur
0.5 
stk
Laukur
100 
g
Kúrbítur (eða hvert annað grænmeti eins og gulrætur)
msk
Olía
0.5 
stk
Chillí (ferskur, duft eða flögur - má sleppa)
stk
Egg
50 
g
Kotasæla
0.5 
tsk
Salt
0.5 
tsk
Pipar
15 
g
Parmesan (eða annar bragðmikill ostur)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti