Ítölsk grænmetissúpa
Ódýr og einföld súpa sem hentar vel í fjölskylduboð. Auðvelt að elda daginn áður og hita upp.

Ódýr og einföld súpa sem hentar vel í fjölskylduboð. Auðvelt að elda daginn áður og hita upp.

Afhýðið og saxið lauk og hvítlauk. Skrælið og skerið gulrætur ásamt blaðlauk í sneiðar.
Hitið olíu í pott við miðlungsháan hita. Steikið lauk, gulrætur og blaðlauk í olíunni þar til laukurinn fer að verða glær.
Bætið hvítlauknum út í og steikið í 2 mínútur til viðbótar.
Bætið hökkuðu tómötunum, tómatpúrru og soði út í pottinn og hrærið öllu saman.
Sigtið vökvann frá baununum og skolið með köldu vatni. Maukið helminginn af baununum með gaffli og setjið hinn helminginn af heilum baunum í skál og geymið.
Bætið maukuðu baununum út í og látið suðuna koma upp. Lækkið svo hitann og sjóðið saman í 25 mínútur.
Hitið ofninn í 180°C. Skerið brauð í teninga og ristið í ofni þar til gullinbrúnt eða í um 8-12 mínútur.
Bætið heilu baununum og spínatinu eða blöndu af spínati og grænkáli í pottinn og sjóðið áfram í 10 til 15 mínútur til viðbótar.
Smakkið súpuna til með salti og pipar.
Rífið parmesan með rifjárni.
Berið súpuna fram með brauðteningum og rifnum parmesanosti, annaðhvort ofan á eða til hliðar í skál.
Frystið grænkál á haustin í pokum og myljið út í súpur sem þessa eftir þörfum – bæði hollt og gott.