Indversk linsubaunasúpa

graenmetis
kjotlaust

Gómsæt og einföld súpa og ekki spillir fyrir hvað hún er trefja- og próteinrík.

Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Indversk linsubaunasúpa

Aðferð

https://salteldhus.is/
  1. Afhýðið og saxið lauk smátt.

  2. Hitið rúmgóðan pott og þurrristið broddkúmen og chillíflögur við lágan eða miðlungs hita í um 1 mínútu eða þar til kryddin fara að ilma.

  3. Bætið olíu í pottinn og steikið laukinn á miðlungs hita þar til hann fer að verða glær.

  4. Bætið linsubaunum, grænmetissoði og söxuðum tómötum í pottinn og sjóðið í 20 mínútur á meðalhita með lokið á pottinum.

  5. Maukið súpuna annaðhvort með töfrasprota í pottinum eða í matvinnsluvél, en þó er einnig hægt að sleppa því.

  6. Setjið kjúklingabaunirnar í sigti og skolið vel með köldu vatni. Bætið baununum út í pottinn og hitið vel saman.

  7. Berið fram með slettu af grískri jógúrt og stráið yfir ferskum kryddjurtum, t.d. kóríander en munið að skola þær vel með vatni.

Hægt er að bæta við grænmeti eftir smekk s.s. gulrótum eða sætri kartöflu. Einnig má bæta við hvítlauk og kryddi að eigin vali.

Súpan geymist vel í kæli og því er tilvalið að elda stóran skammt og eiga til síðar.

Ef grísk jógúrt er ekki við höndina má nota sýrðan rjóma eða hreint skyr til að toppa súpuna.

Næringargildi
Sigríður Björk Bragadóttir

Innihald

2 skammtar
0.5 
stk
Laukur (rauður eða gulur)
tsk
Broddkúmen (cumin)
0.25 
tsk
Chillíflögur (eða duft)
msk
Olía (t.d. ólífu- eða repjuolía)
70 
g
Linsubaunir (þurrar, t.d. rauðar)
4.5 
dl
Grænmetissoð
200 
g
Tómatar (saxaðir í dós, má nota ferska)
100 
g
Kjúklingabaunir (úr dós eða soðnar)
msk
Grísk jógúrt
g
Kóríander (ferskt - til skrauts)

1 g þurrar linsur eru um 2,6 g soðnar linsur.

Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti