Heilkornakex
Hollt og ljúffengt snarl fyrir öll tilefni!
Þessi uppskrift er trefjarík og uppfyllir næringarviðmið um trefja.

Hollt og ljúffengt snarl fyrir öll tilefni!
Þessi uppskrift er trefjarík og uppfyllir næringarviðmið um trefja.

Hitið ofninn í 180°C.
Setjið rúgmjöl, hveiti, mjólk, olíu, sesamfræ og salt í skál og blandið vel saman.
Hnoðið deigið með höndunum eða í hrærivél þar til það verður jafnt og loðir saman. Varist að hnoða meira en nauðsynlegt er svo það verði ekki seigt.
Fletjið deigið þunnt út á hveitistráðu borði með kökukefli. Skerið út kexkökur með formum eða hníf. Raðið kexinu á ofnplötu klædda bökunarpappír.
Brjótið egg í skál og hrærið létt saman með gafli. Penslið kexin með egginu og stráið yfir þau sesamfræjum, flögusalti, kanil eða sykri, allt eftir því hvort þið viljið hafa kexið sætt eða salt.
Bakið kexin í um 10–15 mínútur eða þar til þau verða létt gullin að lit.
Kex toppað með sesamfræjum eða salti er frábært með osti, guacamole eða uppáhalds ídýfunni þinni.