Gyllt chai með túrmerik
Túrmerik hefur notið mikilla vinsælda síðustu ár og gefur drykknum fallegan gylltan lit. Þetta er mildur og hlýr drykkur sem hentar vel á köldum dögum og hefur mjúka og notalega áferð.

Túrmerik hefur notið mikilla vinsælda síðustu ár og gefur drykknum fallegan gylltan lit. Þetta er mildur og hlýr drykkur sem hentar vel á köldum dögum og hefur mjúka og notalega áferð.

Setjið kardimommufræ og piparkorn í mortél og merjið þar til gróft mulið.
Takið hýðið utan af engiferrót og rífið fínt niður með rifjárni.
Setjið mulin kardimommufræ og piparkorn, ásamt engifer, túrmerik og kanil í lítinn pott. Hellið vatni út í og hrærið með skeið.
Hitið við vægan hita og látið malla í 1–2 mínútur þar til myndast þykkt gullt mauk. Standið yfir pottinum og hrærið með skeið eða sleikju svo maukið festist ekki við botninn.
Takið pottinn af hellunni og látið maukið kólna. Setjið í hreina krukku með loki og geymið í kæli. Kryddmaukið geymist í nokkrar vikur í ísskáp.
Fyrir einn skammt setjið 1 tsk af kryddmauki og 2 dl af mjólk eða jurtadrykk að eigin vali í lítinn pott. Hitið við meðalhita og hrærið saman þar til drykkurinn er passlega heitur og maukið hefur blandast vel.
Hægt er að sæta drykkinn með smá hunangi, döðlusírópi eða hlynsírópi og bæta örlitlu vanilludufti eða múskati út í til að fá mildara og dýpra bragð. Stráið kanil eða túrmeriki yfir áður en þið berið fram og notið kókosmjólk eða blöndu af mjólk og jurtadrykk til að fá kremkenndari áferð.
Það er einnig velkomið að nota ferskt túrmerik. Það er meðhöndlað á sama hátt og engifer, en gott er að hafa í huga að rótin er mjög litsterk og getur litað fingur og yfirborð. Því er ráðlegt að nota hanska og jafnvel skurðarbretti sem þolir gula litinn.