Grænmetisbaka með hnetu- og fræbotni
Fullkomin baka fyrir þau sem vilja næringarríka og ljúffenga máltíð. Hún krefst smá undirbúnings sem er þó sannarlega tímans virði.

Fullkomin baka fyrir þau sem vilja næringarríka og ljúffenga máltíð. Hún krefst smá undirbúnings sem er þó sannarlega tímans virði.

Hitið ofninn í 180°C.
Blandið hörfræjum og vatni saman í litla skál eða glas og látið standa í 5 -10 mínútur.
Setjið valhnetur, sólblómafræ, sesamfræ og smá salt í matvinnsluvél eða hakkara. Blandið þar til allt er fínt mulið. Bætið þá hörfræjunum út í og malið áfram þar til blandan minnir á deig.
Setjið nokkra dropa af olíu í eldhúsþurrku og strjúkið bökuform eða eldfast mót að innan með þurrkunni. Notið um 22 cm kringlótt form ef gerð er grunnuppskrift sem miðast við 4 skammta.
Pressið deigið ofan í formið og jafnt upp á kantana. Passið að botninn verði alls staðar jafn þykkur.
Bakið botninn við 180°C í um 20 mínútur. Þegar botninn er tilbúinn, takið hann úr ofninum og setjið til hliðar.
Afhýðið lauk og hvítlauk og saxið smátt og/eða pressið.
Skolið tómata og saxið smátt. Þurrkið sveppi með rakri pappírsþurrku, fjarlægið stilka og sneiðið þunnt.
Skolið spínatið og rífið gróft. Ef notað er frosið spínat, látið það þiðna í nokkrar mínútur og pressið svo mestan vökvann úr því.
Hitið restina af olíunni á stórri pönnu. Steikið lauk og hvítlauk við vægan hita í um 7 mínútur eða þar til laukurinn fer að linast. Ef vantar vökva, bætið við smá vatni.
Bætið grænmetiskrafti út í og hrærið vel.
Setjið sveppina út í og steikið þar til þeir verða mjúkir og byrja að brúnast. Bætið við smá vatni ef vantar vökva.
Setjið saxaða tómata og spínat út á pönnuna.
Látið vatnið renna af tófúinu og þerrið það létt með viskustykki ef þarf. Brjótið egg yfir skál og skiljið að – látið eggjahvítuna renna í skálina og geymið eggjarauðuna til hliðar. Rífið ostinn gróft með rifjárni.
Setjið tófú, eggjahvítur, helminginn af rifna ostinum, túrmerik, kryddblöndu, chillíduft, smá salt og pipar í matvinnsluvél. Blandið í 3–5 sekúndur þar til hráefnin eru gróflega maukuð.
Raðið steiktu grænmetisblöndunni í botninn á mótinu. Hellið tofublöndunni yfir grænmetið. Ýtið varlega með gaffli svo blandan smjúgi vel niður í öll göt og bakan verði þéttari. Dreyfið rifna ostinum yfir að lokum.
Bakið við 180°C í 20-25 mínútur eða þangað til osturinn er bráðinn og bakan heit í gegn. Látið bökuna síðan kólna aðeins áður en hún er skorin.
Gott er að bera bökuna fram með fersku salati.
Í bökufyllingar er upplagt að nýta afganga úr ísskápnum, eins og sætar eða venjulegar kartöflur, blómkál, gulrætur, brokkolí eða kúrbít. Einnig má nota heil egg í stað eggjahvíta en miðið þá við um 2,5 egg fyrir tvo skammta.
Hægt er að nota þessa fyllingu í hefðbundinn heilhveitibotn eða velja aðra fyllingu eftir smekk.
Eitt egg hefur um 35 ml af eggjahvítu. Grunnuppskrift miðast við eggjahvítur úr 5 eggjum.