Grænar baunir með eggi og vinaigrette
Ferskt og gott meðlæti sem hentar vel á páskahlaðborð eða með reyktum laxi og síld.

Ferskt og gott meðlæti sem hentar vel á páskahlaðborð eða með reyktum laxi og síld.

Skolið belgbaunirnar og snyrtið endana ef þarf. Nota má frosna.
Setjið vatn í pott og látið suðuna koma upp. Setjið baunirnar út í og látið malla í um 3 mínútur.
Hellið vatninu af og kælið baunirnar strax í köldu vatni til að stöðva eldunina. Látið vatnið renna vel af.
Sjóðið egg þar til það er lin- eða meðalsoðið, sjá nánari leiðbeiningar um eggjasuðu á vefnum. Kælið fyrst vel, fjarlægið skurn og saxið síðan fínt.
Kreistið sítrónusafa í skál. Afhýðið hvítlauksrifið og rífið niður með rifjárni eða saxið smátt.
Setjið sítrónusafa, hvítlauk og sinnep saman í skál og þeytið með písk. Hellið olíu rólega út í í mjórri bunu á meðan þið þeytið áfram þar til vinaigrettan þykknar lítillega.
Bætið kapers út í og kryddið með pipar.
Setjið baunirnar á bakka eða í skál og hellið dressingu yfir. Stráið söxuðu eggi yfir ásamt smá pipar áður en borið er fram.
Rétturinn er góður bæði volgur og kaldur og hentar vel sem meðlæti með fiski, kjúklingi eða á páskahlaðborð.