Föstudagspizzan
Föstudagspizzan er einföld, bragðmikil og trefjarík. Grænmetið fær að njóta sín og allir í fjölskyldunni verða ánægðir.

Föstudagspizzan er einföld, bragðmikil og trefjarík. Grænmetið fær að njóta sín og allir í fjölskyldunni verða ánægðir.

Setjið þurrger og ylvolgt vatn saman í hrærivélaskál og leyfið þurrgerinu að leysast aðeins upp.
Bætið síðan heilhveiti, hveiti og salti út í skálina og hnoðið deigið með hnoðaranum í eitt samfellt deig.
Látið deigið hefast á hlýjum stað í um klukkustund með viskastykki breitt yfir. Deigið má einnig gera daginn áður og láta það hefast í ísskáp yfir nótt.
Setjið bökunarpappír á ofnplötur. Skiptið deiginu í jafna hluta og fletjið hvern hluta út í kringlóttan botn – eins marga og þið ætlið að baka. Best er að gera þetta rétt áður en pizzurnar eru settar saman.
Takið utan af hvítlauk og saxið smátt. Setjið hvítlaukinn í skál ásamt söxuðum tómötum úr dós, tómatpúrru, ólífuolíu, oreganó og chilidufti og blandið vel saman.
Hitið ofninn í 220°C.
Skrælið sæta kartöflu, skerið í litla teninga og setjið í pott með vatni. Sjóðið við miðlungshita í 3–4 mínútur.
Afhýðið rauðlauk og skerið í þunnar sneiðar. Skolið papriku, kúrbít og brokkolí og skerið í passlega stóra bita.
Rífið ostinn gróft með rifjárni ef þið notið ekki tilbúinn rifinn ost úr poka.
Smyrjið pizzasósu jafnt yfir botnana, en skiljið eftir kanta. Dreifið osti yfir sósuna og raðið grænmeti og pizzakryddi ofan á ostinn.
Bakið pizzuna í ofni í um 10-15 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður og orðinn gylltur og grænmetið er aðeins farið að taka lit.
Gott er að bera fram klettasalat og hvítlauksolíu með pizzunni. Einfalda hvítlauksolíu má útbúið með því að pressa hvítlauk og blanda við smá ólífuolíu og krydd eins og herbs de Provence eða pizzakryddi.
Grænmetið í uppskriftinni er aðeins tillaga. Upplagt er að taka til í grænmetisskúffunni og bæta t.d. baunum eða kjötafgöngum á pizzuna. Einnig má toppa pizzuna með sataysósu eða öðru sem gefur gott bragð.
Grunnuppskriftin af pizzu miðast við fjóra skammta.