Eggjakaka með höfrum og túrmeriki

kjotlaust
graenmetis

Fljótleg, einföld og trefjarík eggjakaka með höfrum, túrmeriki og fersku grænmeti. Hentar vel í morgunmat eða sem léttur kvöldverður.

Egg og afurðir úr þeim,
Kornvörur sem innihalda glúten,
Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Eggjakaka með höfrum og túrmeriki

Aðferð

  1. Brjótið eggin í skál og hrærið vel saman með gaffli.

  2. Hreinsið sveppina með þurrum klút eða eldhúspappír. Skerið þá í tvennt eða í sneiðar, fer eftir stærð. Rífið ost með rifjárni og leggið til hliðar.

  3. Bætið rifnum osti, höfrum, chiafræjum, kryddblöndu, túrmeriki, pipar og salti saman við eggjahræruna í skálinni og hrærið þar til allt er vel blandað.

  4. Hitið olíu á stórri pönnu við miðlungshita. Steikið sveppina á pönnunni þar til gylltir á lit og leggið svo til hliðar á disk.

  5. Stillið pönnuna á miðlungsháan hita. Hellið eggjablöndunni á pönnuna og steikið eggjakökuna í 2–4 mínútur á hvorri hlið, eða þar til hún er elduð í gegn og fallega gyllt.

  6. Skolið kirsuberjatómata og skerið í tvennt. Skolið spínatið og látið vatnið renna vel af.

  7. Færið eggjakökuna yfir á disk og toppið með sveppum, kirsuberjatómötum og spínati. 

Til að auka próteinmagn má nota heil egg í bland við eggjahvítur.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Gott og einfalt
Gott og einfalt

Innihald

2 skammtar
stk
Egg
stk
Sveppir (valkvætt)
25 
g
Ostur (t.d. Sveitabiti eða salatostur)
20 
g
Haframjöl
tsk
Chiafræ (eða möluð hörfræ)
tsk
Kryddblanda (að eigin vali)
0.5 
tsk
Túrmerik (malað - valkvætt)
0.25 
tsk
Pipar
0.25 
tsk
Salt
msk
Olía (t.d. ólífuolía)
stk
Kirsuberjatómatar (eða venjulegir)
20 
g
Spínat (eða annað salat)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti