Chiagrautur með berjum og hnetusmjöri
Einfaldur, trefjaríkur og ljúffengur grautur sem hægt er að geyma í ísskáp yfir nótt og njóta morguninn eftir.
Best er að láta grauturinn standa í ísskáp yfir nótt.

Einfaldur, trefjaríkur og ljúffengur grautur sem hægt er að geyma í ísskáp yfir nótt og njóta morguninn eftir.
Best er að láta grauturinn standa í ísskáp yfir nótt.

Setjið chiafræ í krukku eða skál ásamt vatni, mjólk og kanil og hrærið vel saman. Setjið lok eða plastfilmu yfir og geymið í ísskáp. Best er að láta grautinn standa yfir nótt, en ef tíminn er naumur dugir að láta hann standa í um 10 mínútur.
Skreytið grautinn með ferskum eða frosnum berjum að eigin vali, hnetusmjöri og ef til vill ristuðum kókosflögum.
Gott er að bragðbæta grautinn með kókos, vanillu eða stöppuðum banana. Fyrir meiri sætu má bæta við örlitlu hunangi eða hlynsírópi.
Einnig má toppa grautinn með eplum, bönunum, möndlum, fræjum, granóla eða öðru sem hugurinn girnist.