Þrjár sortir af áramótasnittum
Fjölbreyttar snittur sem henta bæði sem snarl og léttur forréttur. Skemmtilegur veislumatur.

Fjölbreyttar snittur sem henta bæði sem snarl og léttur forréttur. Skemmtilegur veislumatur.

Skerið avókadó í tvennt. Fjarlægið steininn varlega með skeið eða hníf. Skafið innihaldið úr hýðinu og maukið með gaffli. Sá nánari upplýsingar um meðhöndlun á avókadó.
Hreinsið blaðlaukinn og saxið smátt.
Blandið avókadói og blaðlauk saman í skál. Kreistið sítrónusafa yfir og kryddið með salti og pipar, notið um helminginn af piparnum.
Valkvætt: ristið sesamfræin á þurri pönnu á meðalhita í 1–2 mínútur þar til þau ilma. Setjið sesamfræin síðan í skál og blandið pipar saman við þau.
Hafið hrökkbrauðsbitana í munnbitastærð. Smyrjið avókadóblöndunni á hrökkbrauðin. Rífið eða skerið laxinn í litla bita og setjið ofan á hvern hrökkbrauðsbita. Stráið blöndunni af sesamfræjum og rósapipar yfir.
Ristið rúgbrauð í brauðrist eða ofni. Skerið í munnbitastærðir.
Rífið parmesan niður með rifjárni og setjið í skál. Blandið rjómaosti saman við og hrærið. Smyrjið blöndunni á rúgbrauðsbitana.
Skerið fíkju í litla báta og setjið einn bát á hvern brauðbita.
Dreypið smá hunangi yfir brauðbitana.
Stráið ristuðum möndlum yfir brauðbitana. Það má rista möndlur á þurri pönnu á meðalhita í nokkrar mínútur ef ristaðar möndlur fást ekki tilbúnar.
Hitið ofn í 225°C.
Skerið tortilla-brauð í litla þríhyrninga. Setjið tortillu-brauðs bitana á ofnplötu og ristið í miðjum ofni í um 2 mínútur eða þar til tortillu-brauðin fá örlítinn lit.
Hrærið kavíar úr krukku og sýrðum rjóma saman í lítilli skál. Kryddið með smá pipar.
Setjið svolítið af kavíarblöndunni á hvern tortillubita.
Skolið graslauk og saxið smátt. Stráið graslauknum yfir tortillubitana og jafnvel smá pipar að auki.