Smárréttir fyrir áramótin

fiskur

Þrjár tegundir af snittum sem henta vel á áramótaborðið sem forréttir. Hægt að gera einn, tvo eða alla. Einfaldir og bragðgóðir.

Krabbadýr og afurðir úr þeim,
Kornvörur sem innihalda glúten,
Egg og afurðir úr þeim,
Fiskur og fiskafurðir,
Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Hnetur og afurðir úr þeim,
Smáréttir fyrir áramótin

Aðferð

https://www.hjart-lungfonden.se/halsa/recept/

    Rækjur í áramótabúningi

  1. Þíðið rækjurnar. Setjið þær í sigti og látið vatnið renna vel af. Þerrið þær létt með eldhúspappír.

  2. Skrælið piparrótina og rífið niður með rifjárni. Setjið hana í skál ásamt majónesi, pipar og rækjum. Hrærið vel með skeið.

  3. Skolið salatblöð og þerrið.

  4. Setjið rækjufyllingu á hvert salatblað með skeið. Toppið með smá kavíar, ef vill.

  5. Skolið graslaukinn, fínsaxið hann og stráið yfir rækurnar. Berið fram á fallegum disk eða bakka.

  6. Pestósnittur

  7. Hitið ofn í 225°C. Setjið bökunarpappír á ofnplötu.

  8. Rífið parmesan fínt með rifjárni.

  9. Setjið tortilla-brauð á ofnplötuna með bökunarpappírnum. Smyrjið pestói síðan á vefjurnar og stráið parmesan og furuhnetum yfir. Bakið í miðjum ofni í um 6 mínútur eða þar til stökkt. Látið hvíla í 5 mínútur og skerið síðan í þríhyrnda bita með beittum hníf.

  10. Skolið klettasalat og þerrið með eldhúspappír. Setjið klettasalatið yfir snitturnar áður en þær eru bornar fram.

  11. Heitar kryddaðar ólífur

  12. Hellið vökvanum af ólífunum. Setjið þær í sigti og látið standa í nokkrar mínútur.

  13. Hitið olíu á pönnu á meðalhita. Bætið ólífum og chillí út á pönnuna og steikið í um 3 mínútur, hrærið reglulega.

  14. Takið utan af hvítlauknum og saxið hann. Setjið hann á pönnuna með ólífunum og steikið í um 1 mínútu. Passið að hvítlaukurinn brúnist létt en brenni ekki.

  15. Skolið appelsínuna og rífið aðeins ysta börkinn fínt með rifjárni. Setjið börkinn á pönnuna og hrærið vel.

  16. Berið ólífurnar fram volgar í fallegrir skál.

Prófið að leika ykkur með réttina til dæmis með því að bæta sítrónuberki í rækjusalatið og skipta hluta af majónesi út fyrir gríska jógúrt með örlitlu dijon-sinnepi. Smá papríka eða kirsuberjatómatar, ásamt sítrónuberki eða chillíflögum ofan á, gera snitturnar einnig litríkari og ferskari. Ferskar kryddjurtir geta síðan lyft bragðinu enn frekar.

Næringargildi
User Image
Hjärt-Lungfonden

Innihald

2 skammtar
40 
g
Rækjur (soðnar, frosnar)
0.5 
tsk
Piparrót (eða eftir smekk)
1.5 
msk
Majónes
0.25 
tsk
Pipar (nýmalaður)
stk
Salat (t.d. romaine, kínakál eða jöklasalat)
20 
g
Hrogn (úr krukku, t.d. Caviar - valkvætt)
0.5 
msk
Graslaukur (má nota annan lauk)
msk
Parmesan
0.5 
stk
Vefjur (tortilla-brauð, heilhveiti)
msk
Pestó (eða eftir smekk)
msk
Furuhnetur
g
Klettasalat
90 
g
Ólífur (t.d. Kalamata með steinum)
tsk
Olía (t.d. ólífuolía)
0.25 
tsk
Chillí (flögur, eða eftir smekk)
0.25 
rif
Hvítlaukur
0.25 
stk
Appelsínur (börkurinn)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti