Steiktar núðlur með rækjum og grænmeti

kjotlaust
graenmetis
fiskur

Steiktar núðlur með grænmeti eru bæði fljótlegar og ljúffengar. 

Kornvörur sem innihalda glúten,
Krabbadýr og afurðir úr þeim,
Sesamfræ og afurðir úr þeim,
Sojabaunir og afurðir úr þeim,
Steiktar núðlur með rækjum og grænmeti

Aðferð

https://fuldkorn.dk/
  1. Sjóðið núðlurnar samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum. Takið þær svo upp úr vatninu eftir suðu og setjið til hliðar.

  2. Skolið rauðkál, gulrætur og kúrbít og skerið í þunna strimla með hníf eða mandolínjárni.

  3. Takið hýðið af engiferi og hvítlauk og rífið hvort tveggja fínt niður.

  4. Hitið sesamolíu í stórum potti eða wokpönnu.

  5. Bætið hvítlauk og engiferi út á pönnuna og steikið örstutt án þess að það brenni við.

  6. Setjið rækjur út á pönnuna og bætið síðan í framhaldi rauðkáli, gulrótum og kúrbít við. Steikið allt saman í nokkrar mínútur þó þannig að grænmetið haldist smá stökkt.

  7. Blandið síðan núðlunum saman við grænmetið. Slökkvið á hitanum undir pönnunni.

  8. Hellið tamarisósunni yfir í lokin og toppið með fersku söxuðu kóríander og sesamfræum.

Hikið ekki við að nota það grænmeti sem til er í ísskápnum eða það sem ykkur líkar best. Afgangar henta einstaklega vel sem nesti daginn eftir.

Næringargildi
Fuldkornspartnerskabet

Innihald

2 skammtar
150 
g
Núðlur (t.d. heilhveiti-, bókhveiti- eða eggjanúðlur)
200 
g
Rauðkál (ferskt)
stk
Gulrætur
0.25 
stk
Kúrbítur
g
Engifer (valkvætt)
0.5 
rif
Hvítlaukur
tsk
Sesamolía (eða ólífuolía)
50 
g
Rækjur (má nota tófú eða kjúkling)
msk
Tamarisósa (eða saltminni sojasósa)
10 
g
Kóríander (ferskt - valkvætt)
0.5 
msk
Sesamfræ
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti