Jólalegt grænkáls- og eplasalat

graenmetis
kjotlaust
fiskur

Salat úr grænkáli með eplum, möndlum og blámygluosti er fullkomið meðlæti með jólamatnum.

Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Hnetur og afurðir úr þeim,
Brennisteinsdíoxíð og súlfít,
Jólalegt grænkáls- og eplasalat

Aðferð

https://www.hjart-lungfonden.se/halsa/recept/

    Salat og salatolía

  1. Fjarlægið harða stilka af grænkálsblöðunum, skolið blöðin vel og saxið þau gróft.

  2. Hitið vatn í potti og setjið grænkálið út í sjóðandi vatnið í örfáar sekúndur til að mýkja það (blansering).

  3. Hellið kálinu svo í sigti og skolið það strax með ísköldu vatni. Þurrkið létt eða kreistið umfram vatn úr kálinu.

  4. Skolið epli og skerið í þunnar sneiðar.

  5. Skerið granatepli í tvennt, takið fræin úr og setjið í skál. Fjarlægið allt hvítt þar sem það er mjög biturt á bragðið.

  6. Dreifið grænkálinu á stóran fallegan disk eða fat og raðið eplabitunum yfir.

  7. Setjið 2/3 af olíunni, balsamikedik, pipar og rúmlega helminginn af salti í litla skál og hrærið saman með gaffli. Hellið dressingunni yfir salatið og blandið varlega saman.

  8. Myljið blámygluostinn yfir salatið og stráið granateplafræum yfir til skrauts.

  9. Hunangsristaðar möndlur

  10. Ef þið fáið ekki möndlur án hýðis hellið heitu vatni yfir þær, látið standa í 1–2 mínútur. Fjarlægið svo hýðið áður en þær eru steiktar, með því að kreista stakar möndlur á milli fingranna þar til hýðið rennur af. Einnig má nota möndlurnar með hýðinu. 

  11. Setjið afganginn af olíunni á pönnu og hitið upp við miðlungsháan hita.

  12. Steikið möndlurnar á pönnunni, þar til þær verða heitar og aðeins gylltar, í um 3-4 mínútur. Hrærið í þeim af og til. 

  13. Lækkið hitann á pönnunni í lægsta hita og bætið hunanginu út á og hrærið vel saman. Stráið svo kanil og restina af saltinu yfir og hærrið létt í lokin.

  14. Stráið möndlunum yfir salatið rétt áður en þið berið það fram svo þær haldist stökka.

Breyta má salatinu með því að nota perur í stað epla, geitaost, parmesan eða fetaost í stað blámygluosts.

Það getur líka verið gott að bæta smá sítrónusafa í dressinguna fyrir ferskara bragð eða blanda nokkrum trönuberjum eða rúsínur saman við fyrir aukna sætu.

Næringargildi
User Image
Hjärt-Lungfonden

Innihald

2 skammtar
75 
g
Grænkál
0.5 
stk
Epli (að eigin vali)
1.5 
msk
Olía (t.d. ólífuolía)
0.5 
msk
Balsamikedik
0.15 
tsk
Salt
0.15 
tsk
Pipar
20 
g
Granatepli (fræin)
35 
g
Blámygluostur
25 
g
Möndlur (án hýðis)
tsk
Hunang
0.5 
tsk
Kanill (malaður)
0.1 
tsk
Salt
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti