Jarðarberja- og skyrfrappe með jarðarberja-coulis

graenmetis

Svalandi og bragðgóður drykkur með jarðarberjum, banana og skyri sem hentar jafnt hversdags sem og við sérstök tilefni.

Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Jarðarberja- og skyrfrappe með jarðarberja-coulis

Aðferð

    Jarðarberja-coulis

  1. Skolið jarðarberin vel ef þau eru fersk. Ef berin eru frosin er gott að láta þau þiðna í um 5 mínútur áður en byrjað er. 

  2. Skerið límónuna í tvennt og kreistið safann í skál.

  3. Setjið jarðarber, 1-2 teskeiðar af límónusafa (miðað við uppskrift fyrir tvo) og hunang í blandara, lítinn hakkara eða skál. Maukið þar til allt hefur blandast vel. Ef þið viljið grófari áferð má stappa blönduna létt með gaffli.

  4. Jarðarberjafrappe

  5. Setjið frosin jarðarber, banana, skyr, vanillu, mjólk og klaka í blandara.

  6. Maukið þar til drykkurinn verður passlega þykkur og með silkimjúka áferð.

  7. Framreiðsla

  8. Setjið 1–2 msk af jarðarberjacoulis í botn á glösum og notið teskeið til að draga smá af því upp með hliðunum.

  9. Hellið jarðarberja- og skyrfrappinu varlega í glösin og setjið smá afgang af coulis yfir drykkinn ef vill.

  10. Berið fram strax. 

Í þessa uppskrift má nota mismunandi ber og ávexti allt eftir smekk. Hægt er að nota ber eins og bláber eða hindber, bæði í staðinn eða blanda saman við jarðarberin. Fyrir aukið terfjamagn má bæta við smá frosnu, rifnu blómkáli eða chiafræjum og blanda með án þess að það hafi mikil áhrif á bragðið. Einnig má bæta við haframjöli, hampfræjum eða chiafræjum fyrir meiri fyllingu.

Hægt er að bera drykkinn fram í mismunandi glösum eða krukkum fyrir skemmtilega framsetningu.

Óhætt er að geyma coulis og frappeblönduna sitt í hvoru lagi í kæli í allt að 1 klukkustund og setja saman rétt áður en drykkurinn er borinn fram.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Gott og einfalt
Gott og einfalt

Innihald

2 skammtar
75 
g
Jarðarber (fersk eða frosin - eða t.d. bláber og hindber)
0.5 
stk
Límóna (safinn)
tsk
Hunang (eða önnur sæta - valkvætt)
150 
g
Jarðarber (eða bláber)
stk
Bananar
200 
g
Skyr (hreint, eða létt grísk jógúrt)
tsk
Vanilla (duft eða dropar)
dl
Mjólk (að eigin vali, eða vatn)
stk
Klakar (valkvætt)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti