Rauðrófuhummus

vegan
graenmetis

Ljúffengur, litríkur og næringarríkur rauðrófuhummus sem bætir trefjum við mataræðið.

Sesamfræ og afurðir úr þeim,
Rauðrófuhummus

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 200°C.

  2. Vefjið rauðrófuna í álpappír og ofnbakið við 200°C í 40–60 mínútur eða þar til hún er mjúk í gegn. Einnig er hægt að sjóða rauðrófuna. Afhýðið hana þá fyrst, skerið í teninga og sjóðið í potti í 10–15 mínútur eða þar til hún er orðin mjúk.

  3. Setjið kjúklingabaunirnar í sigti, skolið þær undir köldu vatni og látið vatnið renna vel af.

  4. Rífið börkinn af sítrónunni með fíngötuðu rifjárni og kreistið safann úr henni.

  5. Setjið öll hráefnin nema ólífuolíu, sítrónusafa og sítrónubörk í matvinnsluvél og maukið vel (einnig má nota töfrasprota). Hellið síðan ólífuolíu og sítrónusafa hægt saman við á meðan þið blandið þar til hummusinn verður silkimjúkur. Notið sítrónubörk eftir smekk.

Gott er að smakka hummusinn til jafnóðum. Byrjið á að setja lítið af sítrónusafa og bætið honum síðan smátt og smátt við ásamt olíunni þar til áferðin og bragðið eru eins og þið viljið hafa það.

Hummusinn er tilvalinn sem ídýfa með niðurskornu grænmeti eða sem álegg á grófkorna- eða súrdeigsbrauð.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Gott og einfalt
Gott og einfalt

Innihald

6 skammtar
250 
g
Rauðrófur (ferskar eða foreldaðar)
240 
g
Kjúklingabaunir (t.d. úr dós)
0.5 
stk
Sítróna (safinn og börkurinn)
0.25 
tsk
Salt
0.25 
tsk
Pipar
rif
Hvítlaukur
30 
g
Tahini (eða hnetusmjör)
msk
Vatn (eða eftir smekk)
0.5 
dl
Olía (t.d. kókos- eða kaldpressuð ólífuolía)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti
vegan
graenmetis

Aðrar hugmyndir