Ástaraldin- og sítrusdrykkur
Ferskur og svalandi drykkur með appelsínu, límónu og ástaraldini. Tilvalinn sem hressing á sumardögum eða við sérstök tilefni.
Ferskur og svalandi drykkur með appelsínu, límónu og ástaraldini. Tilvalinn sem hressing á sumardögum eða við sérstök tilefni.
Skerið appelsínu í tvennt og kreistið safann í könnu eða skál. Ef notaður er appelsínusafi farið beint í næsta skref.
Skerið límónuna í tvennt og kreistið safann úr henni og bætið við appelsínusafann.
Skerið ástaraldinið í tvennt og skafið innihaldið úr því með skeið og bætið út í appelsínu- og límónusafann. Ef þið viljið sleppa ástaraldinfræjunum sigta þau frá. Hrærið saman með skeið.
Skiptið appelsínu-, límónu- og ástaraldinsblöndunni jafnt á milli glasa.
Hellið köldu vatni eða sódavatni yfir. Hrærið varlega saman með skeið svo gosið haldist sem best í drykknum.
Setjið klaka út í drykkina og berið fram strax.
Prófið að bæta við ferskri myntu, mangói eða ananas fyrir nýtt bragð. Einnig má nota blóðappelsínur í stað appelsína eða bæta við nokkrum ferskum berjum eða rósmaríngrein í glösin við framreiðslu.
Drykkinn má útbúa fyrirfram og geyma í kæli. Bætið klökum þá út í rétt áður en hann er borinn fram.